Er ekki kominn tími á að skerpa á eða koma með skýrari reglur um kattahald eins og annað dýrahald í bænum – þetta er að verða frekar hvimleitt með alla þessa ketti.
Skráum kettina í bæjarfélaginu einsog Blönduós gerir !
Ég missti fimm egg strax um vorið og svo síðar sama sumarið fimm litla sæta unga, okkur hjónunum tókst ekki að stækka fjölskylduna þetta árið – kettirnir ótalmörgu sáu til þess. Þeir sem borga fyrir lóðina okkar á hverju ári fá greinilega engu ráðið hvort þeir vilji hafa ketti í garðinum sínum. Ég veit að þeir vilja hafa okkur og félaga okkar því þeir gefa okkur vel að borða allan veturinn. Er ekki kominn tími á að vernda okkur og garðana fyrir köttum. Kær kveðja Þröstur Þrastarson
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation