Við búum við þá staðreynd að Miðgarður er á þannig stað að börnum er mjög mikið skutlað og sótt. Aðstöðuna í dag þarf að laga og og útbúa skutlsvæði til aukins öryggis fyrir börnin. Það þarf að vera einhvernskonar hringur eða skutlvasi þar sem hægt er að skulta/sækja börnin og keyra af stað án þess að þurfa að bakka og stoppa alla umferð eins og er í dag. Gerum eitthvað áður en það verður slys sem er ekki aftur tekið. Miðgarður er frábær bygging - þessi aðkoma er ekki boðleg og við getum betur.
Þessi hugmynd fellur ekki innan skilyrða lýðræðisverkefnisins Betri Garðabær og fer því ekki í kosningu. Margar hugmyndir sem féllu ekki innan skilyrða verkefnisins verður komið áfram til viðeigandi sviða innan sveitarfélagsins. Við þökkum þér kærlega fyrir þátttökuna í hugmyndasöfnun Betri Garðabæjar og vekjum um leið athygli á því að kosningahluti verkefnisins stendur yfir til og með 20. maí og hvetjum við þig til að taka þátt. Kynntu þér kosningarnar nánar á vef Garðabæjar, www.gardabaer.is. Með kveðju, verkefnahópur Betri Garðabæjar.
This content is created by the open source Your Priorities citizen engagement platform designed by the non profit Citizens Foundation